Bókunar- og þjónustuskilmálar Unidrone
1. Gildissvið og bókun
Skilmálarnir gilda um ljósmynda- og myndbandsþjónustu Drona Mynda (Unidrone), nema annað hafi verið samið skriflega. Bókun telst staðfest þegar báðir aðilar hafa samþykkt dagsetningu, tíma, umfang verkefnis og verð.
2. Aðgengi og heimildir
Viðskiptavinur sér um að tryggja aðgengi að eigninni á umsömdum tíma og afla nauðsynlegra heimilda frá eigendum eða húsfélagi, ef þeirra er þörf. Viðskiptavinur staðfestir einnig að hann hafi heimild til að panta myndatökuna.
3. Veður, flugreglur og öryggi
Drónaflug er háð veðri, skyggni og gildandi flugreglum. Við metum aðstæður fyrir hverja myndatöku og fljúgum ekki ef það getur skapað hættu eða flugtakmarkanir eða skortur á leyfi koma í veg fyrir flug. Ef nauðsynlegt er að færa myndatöku vegna veðurs, flugtakmarkana, öryggisástæðna eða annarra ófyrirséðra aðstæðna er nýr tími ákveðinn án aukakostnaðar.
4. Afpantanir
Afpöntun með meira en 24 klukkustunda fyrirvara er án endurgjalds. Afpöntun með skemmri fyrirvara eða það að viðskiptavinur sé ekki tiltækur á umsömdum tíma getur leitt til þjónustugjalds vegna ferðar og frátekins tíma.
5. Tafir
Ef myndataka tefst vegna veðurs, lokana, framkvæmda, umferðar eða annarra atvika sem Drona Myndir hefur ekki stjórn á, er nýr tími ákveðinn. Viðskiptavinur fær upplýsingar um tafir eins fljótt og auðið er.
6. Afhending og athugasemdir
Afhending fer fram á þeim tíma sem samið var um við bókun, með hliðsjón af umfangi verkefnis. Vinsamlegast sendið athugasemdir við afhent efni innan sjö daga frá afhendingu.
7. Endurmyndataka og breytingar
Ein endurmyndataka er innifalin ef hún reynist nauðsynleg vegna mistaka af hálfu Drona Mynda. Ný myndataka vegna breytinga á eign, óskum viðskiptavinar eða sviðsetningu getur verið gjaldskyld samkvæmt gildandi verðskrá. Minniháttar lagfæringar eru innifaldar; umfangsmeiri breytingar eða ný vinnsla eftir samþykkta afhendingu geta verið gjaldskyldar.
8. Greiðsla
Greiðsla skal berast innan tveggja daga frá afhendingu myndefnis, nema annað hafi verið samið skriflega. Fyrir stærri verkefni, umfangsmikil myndbönd eða verkefni utan höfuðborgarsvæðisins getur þurft að greiða 50% staðfestingargjald við bókun. Það dregst frá lokareikningi. Dráttarvextir og lögmætur innheimtukostnaður geta bæst við greiðslu sem berst eftir gjalddaga.
9. Höfundarréttur og notkun myndefnis
Höfundarréttur að myndefninu er í eigu Drona Mynda (Unidrone). Þegar reikningur hefur verið greiddur að fullu fær viðskiptavinur notkunarrétt að efninu í þeim tilgangi sem samið var um, nema annað hafi verið samið skriflega. Drona Myndir getur birt myndefnið í verkefnasafni, á samfélagsmiðlum, á heimasíðu og í öðru kynningarefni, nema viðskiptavinur óski skriflega eftir trúnaði áður en verkefnið hefst.
10. Ábyrgð og óviðráðanlegar aðstæður
Drona Myndir ber ekki ábyrgð á töfum eða breytingum vegna veðurs, flugtakmarkana, truflana eða bilana í GPS- eða fjarskiptakerfum, rafmagnsleysis, ákvarðana stjórnvalda, náttúruhamfara eða annarra aðstæðna sem fyrirtækið hefur ekki stjórn á.
11. Ágreiningur
Reynt skal að leysa ágreining með samkomulagi. Skilmálarnir byggja á íslenskum lögum.




